Eignuðust sitt fyrsta barn

Amy Lee.
Amy Lee. Ljósmynd/Wikipedia

Söngkona hljómsveitarinnar Evanescence, Amy Lee, eignaðist sitt fyrsta barn á mánudaginn síðasta, að því er vefsíða Daily Mail greinir frá.

Amy Lee og eiginmaður hennar, þerapistinn Josh Hartzler, eignuðust son sem þau nefndu Jack Lion Hartzler á mánudaginn síðasta en þetta er þeirra fyrsta barn saman.

Söngkonan deildi mynd af sér með syninum á Instagram þar sem þau virtust friðsæl á spítalanum eftir fæðinguna.

Amy Lee og Josh Hartzler hafa verið gift í sjö ár en söngkonan tilkynnti heiminum að hún væri ólétt í janúar á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant