Hlakkar til foreldrahlutverksins

Hayden Panettiere.
Hayden Panettiere. mbl.is/AFP

Unnusti Hayden Panettiere telur hana verða frábæra móður, að því er E! News greinir frá.

Úkraínski boxarinn Vladimir og Hayden Panettiere eiga von á sínu fyrsta barni saman. Talsverður aldursmunur er á parinu en leikkonan er 24 ára og boxarinn 38 ára.

Í viðtali við E! News segir Vladimir að lífið breytist þegar maður verður foreldri og segist hann hlakka mikið til að barnið fæðist. Hann segir einhvern hafa sagt sér að maður þekki ekki ást fyrr en maður eignist sitt fyrsta barn.

Um unnustu sína hafði hann það að segja að honum finnst hún frábær manneskja og er viss um að hún verði frábær móðir.

Vladimir segir það hafa verið draum unnustu sinnar að eignast barn í þónokkurn tíma en þau vilja ekki fá að vita kynið áður en barnið fæðist og ætla að láta það koma á óvart.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson