Ergir Orlando Bloom

Justin Bieber.
Justin Bieber. mbl.is/AFP

Eftir að Orlando Bloom og Justin Bieber lentu í slagsmálum í veislu á Ibiza aðfaranótt miðvikudags hefur Justin Bieber birt mynd af Orlando Bloom þar sem hann virðist grátandi til að ergja hann enn meira, að því er fréttastofan Sky greinir frá.

Justin Bieber birti mynd af fyrrverandi eiginkonu Orlando Bloom, Miröndu Kerr, stuttu eftir að slagsmálin áttu sér stað en eyddi henni stuttu síðar.

Bieber er greinilega að reyna að ergja leikarann með því að setja mynd á Instagram af Bloom þar sem hann virðist vera grátandi.

Þegar Bloom reyndi að slá til Bieber kom öryggisvörður hans í veg fyrir að um frekari slagsmál urðu en gestir veislunnar klöppuðu þegar Justin Bieber yfirgaf veisluna eftir ríginn.

Ekki er enn vitað hvers vegna Bloom reyndi að slá til Justin Bieber en talið er að það sé vegna þess að báðir hafi þeir verið að hitta fyrrverandi kærustur hvors annars. Bloom sást þá í apríl síðastliðnum snæða kvöldverð með Selenu Gomez sem er fyrrverandi kærasta Biebers og sögusagnir hafa verið uppi um að Bieber sé að hitta fyrrverandi eiginkonu Bloom, Miröndu Kerr. 

Myndin sem Justin Bieber birti af Orlando Bloom á Instagram.
Myndin sem Justin Bieber birti af Orlando Bloom á Instagram. Ljósmynd/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson