Kvikmyndafyrirtækið Paramount Pictures baðst í dag afsökunar vegna veggspjalds sem birt var vegna nýrrar kvikmyndar, Teenage Mutant Ninja Turtles.
Á veggspjaldinu mátti sjá persónur úr myndinni hoppa fram af brennandi byggingu. Þar mátti einnig sjá upplýsingar um frumsýningardaginn í Ástralíu, 11. september á þessu ári.
Notendur samfélagsmiðla voru margir hverjir hneyklaðir og töldu þetta óheppilega vísun í hryðjuverkin í Bandaríkjunum þann 11. september 2001. Fyrirtækið hefur nú fjarlægt auglýsinguna af Twitter og Facebook-síðu sinni og beðist afsökunar.
„Það voru mistök að blanda þessari mynd og dagsetningu saman. Við ætluðum okkur ekki að mógða neinn,“ segir í tilkynningu frá Paramount Pictures.