Gagnrýnir fyrrverandi kærustu Robs Kardashian

Kim Kardashian.
Kim Kardashian. Mynd/AFP

Kim Kardashian hellir sér yfir fyrrverandi kærustu Rob Kardashian, að því er tímaritið Latina greinir frá.

Fyrrverandi kærasta Robs Kardashian, Adrienne Bailon, sagði í viðtali við tímaritið Latina að það hafi haft slæm áhrif á feril sinn að hafa verið í sambandi með Kardashian-fjölskyldumeðlim. Hún segir einnig að hún gruni að Rob Kardashian hafi haldið framhjá henni en þau voru saman í tvö ár eða frá 2007 til 2009.

Adrienne Bailon segist hafa áttað sig of seint á því hvaða áhrif það myndi hafa á feril hennar að vera með Kardashian-fjölskyldumeðlim en sjálf er hún leik- og söngkona.

Kim Kardashian brást illa við ummælum Adrienne Bailon um Rob Kardashian og deildi stöðuuppfærslu á Twitter þar sem hún segir það fáránlegt að Adrienne Bailon segi þetta og segir að hún hafi bara verið tekin í viðtal vegna þess að viðtalið hafi verið um Kardashian-fjölskylduna.

Rob Kardashian hefur átt við þyngdarvandamál og þunglyndi að stríða undanfarið en hann hefur ekki haft samband við Kardashian-fjölskylduna í dágóðan tíma. Hann mætti meðal annars ekki í brúðkaup þeirra Kim Kardashian og Kanye West í maí.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson