Mættu á sýningu saman

Gwyneth Paltrow.
Gwyneth Paltrow. mbl.is/AFP

Gwyneth Paltrow og Chris Martin mættu á kvikmyndasýningu saman í New York síðasta mánudag, að því er People greinir frá.

Mánudaginn síðasta mættu fyrrverandi hjónin bæði á kvikmyndasýningu kvikmyndarinnar Hextor and the Search for Happiness en góðvinur þeirra, Simon Pegg, leikur aðalhlutverk í myndinni.

Chris Martin og Gwyneth Paltrow eiga tvö börn saman og voru gift í tíu ár áður en þau tilkynntu skilnað sinn í mars á þessu ári. Heimildarmaður sagði í samtali við People að þau hefðu litið út fyrir að vera saman á ný á kvikmyndasýningunni en staðfesti þó að þau væru enn skilin.

Með Gwyneth Paltrow mætti móðir hennar, Blythe Danner, og sást Chris Martin fylgja henni út í lok sýningar að bíl sínum. Allt virðist þannig leika í lyndi á milli fyrrverandi hjónanna en vinskapur þeirra og hegðun hvort í garð annars hefur valdið getgátum um að þau muni taka saman aftur.

Simon Pegg, aðalleikari kvikmyndarinnar á kvikmyndasýningunni, er guðfaðir dóttur þeirra Gwyneth Paltrow og Chris Martins og er Chris Martin guðfaðir dóttur Simons Peggs. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson