Vill ná fyrrverandi aftur

Kendall Jenner.
Kendall Jenner. mbl.is/AFP

Kendall Jenner er staðráðin í að næla aftur í fyrrverandi kærasta sinn, Harry Styles, að því er dagblaðið Daily Star greinir frá.

18 ára fyrirsætan og Kardashian-fjölskyldumeðlimurinn Kendall Jenner hefur náð sér í VIP-aðgangsmiða á nokkra tónleika með hljómsveitinni One Direction og segist staðráðin í því að næla aftur í söngvarann Harry Styles.

Harry Styles og Kendall Jenner byrjuðu saman í nóvember á síðasta ári eftir að umboðsmenn þeirra beggja kynntu þau. Þau voru saman í þrjá mánuði en upp úr sambandinu slitnaði vegna þess hversu upptekin þau bæði voru.

Kendall hefur áður sagt að hún telji Harry Styles vera þann eina rétta fyrir sig og vill örvæntingarfull ná honum til baka.

Heimildarmaður hefur eftir Kendall Jenner að hún sjái eftir því að hafa hætt með Harry Styles og vilji láta reyna á það að endurheimta rómantíkina þeirra á milli á ný.

Orðrómur er uppi um að Harry Styles sé hins vegar að hitta fyrirsætuna Paige Reifler, sem er 18 ára, en þau sáust saman í veislu í London fyrr í mánuðinum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson