Enn meiri afbrýðisemi

Orlando Bloom.
Orlando Bloom. Ljósmynd/Wikipedia

Getgátur eru uppi um að Orlando Bloom sé að hitta Ericu Parker, að því er dagblaðið New York Post greinir frá.

Leikarinn sást ásamt söngkonunni Ericu Parker á eyjunni Formentera sem tilheyrir Spáni síðasta fimmtudag og virtist ekkert fúll yfir slagsmálum sem áttu sér stað aðfaranótt miðvikudags á milli hans og Justins Bieber.

Parker er fyrrverandi eiginkona ástralska milljarðamæringsins James Packer en sá hefur einmitt einnig verið talinn vera að hitta fyrrverandi eiginkonu Orlandos Bloom, Miröndu Kerr.

Aðfaranótt miðvikudags sló Orlando Bloom til Justin Bieber þegar hann ögraði honum með því að nefna Miröndu Kerr en orðrómur var uppi um að hún hefði haldið framhjá Orlando Bloom eftir Victoria‘s Secret-tískusýningu árið 2012.

Lögfræðingur Miröndu Kerr segir hins vegar að hún hafi ekki haldið framhjá Orlando Bloom og að orðrómurinn sé rangur og ærumeiðandi.

Miranda Kerr neitar einnig að hún sé að hitta James Packer og segir þau bara vini.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant