Kemst yfir skilnaðinn

Hilary Duff.
Hilary Duff. mbl.is/AFP

Hilary Duff segir það hafa verið mjög erfitt tímabil eftir að hún sleit sambandi sínu við fyrrverandi eiginmann sinn, að því er vefsíða US magazine greinir frá.

Duff og Mike Comrie voru gift í þrjú ár en söng- og leikkonan segist enn vera ástfangin af hokkíleikaranum. Þau skildu í janúar á þessu ári og hefur Duff gefið út lag um hann á nýjustu plötu sinni.

Duff segist óviss um hvort þau taki aftur saman en viðurkennir að hún sé enn ástfangin af honum. Saman eiga þau soninn Luca sem er tveggja ára en á nýju plötu hennar má einnig finna lag um Luca. Plötuna segir hún vera mjög persónulega og þar megi finna lög um ást hennar á fyrrum eiginmanni sínum, um soninn, skilnaðinn og hvort þau tvö eigi saman eða ekki.

Þá segir Duff að platan hafi orðið mun þyngri en hún átti upprunalega að vera vegna skilnaðarins en hún er mjög ánægð með að vera komin aftur í sviðsljósið eftir fimm ára fjarveru.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant