Vill tvítyngd börn

Zoe Saldana.
Zoe Saldana. mbl.is/AFP

Guardians of the Galaxy-leikkonan Zoe Saldana vill að börn sín verði tvítyngd, að því er tímaritið Latinas greinir frá.

Zoe Saldana á föður sem er frá Dóminíska lýðveldinu og móðir hennar er frá Costa Rica en hún segist hafa alist upp við að tala bæði ensku og spænsku ásamt því að hafa lært frönsku.

Leikkonan er í sambandi með Marco Perego sem er Ítali og segist hún fullviss um að vilja ala börn sín upp við að tala nokkur tungumál líkt og hún ólst sjálf upp við.

Talið er að leikkonan sé ólétt að tvíburum en þau Marco Perego giftust í júní á síðasta ári. Hún segir það að hafa talað bæði ensku og spænsku og lært frönsku hafa hjálpað sér gríðarlega við að skilja ítölsku og portúgölsku.

Zoe Saldana hefur áður leikið í Avatar-kvikmyndunum, Pirates of the Caribbean-kvikmyndunum og Star Trek.  Áður en Zoe Saldana giftist Marco Perego var hún í sambandi með Bradley Cooper frá árinu 2011 til janúar 2013.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson