Byrjuð aftur saman?

Chris Brown.
Chris Brown. mbl.is/AFP

Getgátur eru uppi um að Chris Brown og Karrueche Tran séu byrjuð aftur saman, að því er vefsíða TVNZ greinir frá.

Parið hefur verið sundur og saman í þrjú ár en fyrr í mánuðinum var talið að þau hefði slitið ástarsambandi sínu. Hins vegar sáust þau saman síðustu helgi á fótboltaleik í Los Angeles og virtust yfir sig ástfangin á leiknum.

Aðeins vika er síðan Chris Brown var talinn hafa sagt kærustunni upp eftir að hafa sagt að hún væri tækifærissinni.

Heimildarmaður sagði að Kerrueche Tran hafi sent öðrum strákum myndir og smáskilaboð og að Chris Brown hefði verið reiður út í hana fyrir að fara í viðtöl og kynna fatalínu sína og tala um samband sitt við Chris Brown til þess eins að fá sínar fimmtán mínútur af frægð.

Einnig hefur áður komið fram að Chris Brown hafi líkað við tvær myndir aðdáenda á Instagram af honum og fyrrverandi kærustu sinni Rihönnu en hann hefur verið með henni inn á milli þess sem hann var með Kerrueche Tran.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson