Fyrrum Pussycat Dolls söngkonan, Kimberly Wyatt, er ólétt af sínu fyrsta barni, að því er tímaritið HELLO! greinir frá.
Kimberly Wyatt og eiginmaður hennar, Max Rogers, eiga von á stúlkubarni en söngkonan uppgötvaði að hún væri ólétt þegar þau voru í brúðkaupsferð sinni í New York. Parið gifti sig í febrúar á þessu ári eftir að hafa verið saman í tvö ár.
Söngkonan á von á sér í desember og staðfestir að þau hjónin muni ala dótturina upp á Englandi en sjálf er hún frá Bandaríkjunum. Parið býr á Englandi og segir Kimberly Wyatt að England sé hennar heimaland í dag.
Eiginmaður hennar starfar sem fyrirsæta og ferðast mikið vegna vinnu sinnar. Söngkonan segir hann meðal annars vera nýkominn heim frá New York og haldi til Spánar næst.