Kominn með nýja?

Chris Martin.
Chris Martin. Ljósmynd/Wikipedia

Getgátur hafa verið uppi um að Jennifer Lawrence og Chris Martin séu að hittast en Chris Martin og Gwyneth Paltrow skildu að borði og sæng fyrr á þessu ári.

Að því er Daily Mail greinir frá hefur verið talið að Chris Martin og Jennifer Lawrence hafi daðrað við hvort annað eftir Coldplay tónleika í júlí.

Chris Martin og Gwyneth Paltrow hættu saman í mars á þessu ári en þau höfðu verið gift í tíu ár og eiga saman tvö börn. 

Talsverður munur er á lífsstíl Jennifer Lawrence og Gwyneth Paltrow en Jennifer Lawrence borðar mikið af ruslfæði og reykir og fer ekki leynt með óhollan lífsstíl sinn. Gwyneth Paltrow hefur hins vegar alltaf haldið sér í formi og borðað hollan mat. Gwyneth Paltrow hefur einnig alið börn þeirra Chris Martins upp á grænmetisfæði.

Talsverður aldursmunur er einnig á þeim Jennifer Lawrence og Gwyneth Paltrow en Jennifer Lawrence er 25 ára en Gwyneth Paltrow 41 árs.

Chris Martin og Gwyneth Paltrow eru sögð búa saman ennþá þrátt fyrir sambandsslitin og sáust saman í fjölskyldufríi í East Hamptons í New York í síðasta mánuði.

Jennifer Lawrence hætti nýverið með kærasta sínum, Nicholas Hoult, en þau höfðu verið saman í þrjú ár. Leikkonan hefur nýlega lokið tökum á kvikmyndinni The Hunger Games: Mockingjay en hún er í tveimur hlutum og kemur í bíóhús á þessu ári og næsta ári. 

Jennifer Lawrence og Nicholas Hoult byrjuðu saman á meðan tökum á X-Men: First Class stóð yfir árið 2011 en þau hættu svo saman árið 2013. Þau byrjuðu svo aftur saman sex mánuðum síðar eftir tökur á X-Men: Days of Future Past en slitu sambandinu á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler