Fyrrum forseti í ísfötu-áskorun

George W. Bush fær fötu af köldu vatni yfir sig.
George W. Bush fær fötu af köldu vatni yfir sig. Mynd/NBC

Nýjasta æðið í netheimum hefur varla farið framhjá neinum. Gríðarlegur fjöldi fólks hefur skorað á vini sína og vandamenn að hella yfir sig fullri fötu af ísköldu vatni. Í vikunni skoraði Jenna Bush á föður sinn, George W. Bush að taka áskoruninni og í dag varð hinn fyrverandi forseti við ósk hennar. 

Það var í viðtali í sjónvarpsþættinum Today á NBC sem Jenna Bush hlaut áskorunina. Hún stóðst hana með prýði og að henni lokinni skoraði hún á föður sinn að taka áskoruninni. Það bjuggust eflaust fáir við því að hann myndi verða að ósk hennar en í dag birtist myndband á netinu þar sem hann fær yfir sig fulla fötu af köldu vatni, fyrir tilstilli eiginkonu sinnar, Lauru Bush. 

„Mér finnst það ekki forsetalegt að fá yfir sig fulla fötu af vatni. Þess vegna ætla ég ekki að verða við áskoruninni, heldur skrifa ég ávísum til góðgerðarmála,“ segir Bush í viðtalinu áður en Laura kemur aðvífandi og hellir yfir hann fötu. Sjón er sögu ríkari. 

Hvern skoraði Bush sjálfur á? Jú, forvera sinn í embætti forseta, Bill Clinton. 

Áður hafa margir frægir einstaklingar tekið áskoruninni, meðal annars Christian Eriksen, leikmaður Tottenham Hotspur, söngkonurnar Jennifer Lopez og Lady Gaga og rapparinn Lil Wayne. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant