Komin yfir fyrrverandi

Vanessa Hudgens.
Vanessa Hudgens. mbl.is/AFP

Vanessa Hudgens virðist vera komin yfir fyrrverandi kærasta sinn, Zac Efron.

Söng- og leikkonan skrifaði á bloggsíðu sína að hún sé yfir sig ástfangin af núverandi kærastanum sínum, Austin Butler, og kallaði hann ástina í lífi sínu.

Vanessa Hudgens lék nú síðast í bandarísku grín- og hryllingsmyndinni Kitchen Sink en þar lék hún ásamt Ed Westwick og Bob Odenkirk en myndin kemur út á næsta ári. 

Austin Butler lék síðast í kvikmyndinni Yoga Hosers en hún kemur út á næsta ári.

Á bloggsíðu sinni deildi Vanessa Hudgens mynd af sér og kærastanum þar sem þau sjást brosandi og virðast alsæl. Í blogginu óskaði hún honum til hamingju með afmælið, en hann fagnaði 23 ára afmæli sínu á mánudaginn síðasta, og þakkaði Guði fyrir að hafa gefið henni þennan æðislega strák.

Vanessa Hudgens og Austin Butler hafa verið saman í þrjú ár.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant