Sjúkrahús í Suður Afríku viðurkenndi í dag að hafa framkvæmt hjartaskurðaðgerð á röngum einstaklingi eftir að ruglast var á nöfnum tveggja sjúklinga. Hin 83 ára gamla Rita du Plessis hafði verið lögð inn á sjúkrahúsið vegna sýkingar í öndunarfærum. En í staðinn fyrir að meðhöndla það var hún skorin upp til þess að fjarlægja umfram vökva við hjarta hennar.
Fram kemur í frétt AFP að heimilislæknir Du Plessis hafi ruglast á nafni hennar og annars sjúklings þegar hann átti í samskiptum símleiðis við skurðlækni á sjúkrahúsinu. „Misskilningur á milli tveggja sérfræðinga varð til þess að framkvæmd var aðgerð á röngum sjúklingi,“ segir í yfirlýsingu sjúkrahússins.
Ennfremur segir að heimilislæknirinn hafi áttað sig á mistökunum þegar aðgerðin var hafin á Du Plessis. Læknirinn og sjúkrahúsið hafa beðist afsökunar á mistökunum. Þá segir í yfirlýsingunni að Du Plessis hafi staðið sig vel í aðgerðinni og að hún verði ekki rukkuð fyrir hana.