Fær skilnaðarráð frá Paltrow

Beyoncé Knowles.
Beyoncé Knowles. mbl.is/AFP

Beyoncé Knowles reiðir sig á Gwyneth Paltrow þegar kemur að andlegum stuðning, að því er tímaritið Us Weekly greinir frá.

Orðrómur hefur lengi verið uppi um að hjónaband þeirra Beyoncé og rapparans Jay Z hafi ekki verið upp á sitt besta undanfarið.

Gwyneth Paltrow og Chris Martin skildu að borði og sæng fyrr á þessu ári eftir tíu ára hjónaband en þau eiga saman tvö börn.

Að því er heimildarmaður ræðir í viðtali við tímaritið Us Weekly segir hann að Beyoncé Knowles sæki ráð til Gwyneth Paltrow vegna þess að hún hyggist skilja við Jay Z.

Aðrar heimildir herma að Jay Z og Beyoncé muni feta í fótspor Chris Martin og Gwyneth Paltrow og skilja að borði og sæng eftir að tónleikaför þeirra um heiminn, sem kallast On the Run, lýkur í september.

Tónleikaförinni lýkur í París en hjónin munu halda þangað í byrjun september.

Beyoncé og Jay Z hafa verið góðir vinir þeirra Chris Martin og Gwyneth Paltrow í dágóðan tíma og söngkonan hrósaði meðal annars leikkonunni nýlega fyrir að vera æðisleg vinkona.

Beyoncé leggur mikið á sig til að láta líta út fyrir að allt sé í góðu lagi í hjónabandi þeirra Jay Z þar sem hún meðal annars deilir myndum á Instagram af sér og rapparanum og dóttur þeirra Blue Ivy þar sem allt virðist leika í lyndi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant