Hætt saman

Leikarinn Zac Efron.
Leikarinn Zac Efron. mbl.is/AFP

Zac Efron og Michelle Rodriguez eru hætt saman eftir nokkur heiftarleg rifrildi, að því er tímaritið Us Weekly greinir frá.

Leikaraparið sást fyrst saman á Ítalíu snemma í júlí þar sem þau sáust meðal annars kyssast og skemmta sér konunglega saman.

Nú hafa þau slitið sambandinu eftir heiftarleg rifrildi á Ibiza á Spáni fyrr í þessum mánuði.

Heimildarmaður sagði í viðtali við tímaritið Us Weekly að Michelle Rodriguez hafi alltaf verið þannig að hún geri það sem hún vilji og að Zac Efron hefði vitað það um hana þegar þau byrjuðu saman.

Mögulegt sé að hann hafi verið hrifnari af henni en hún af honum.

Bæði hafa þau Michelle Rodriguez og Zac Efron verið áður í meðferð vegna áfengisfíknar og eiturlyfjamisnotkunar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson