Eignuðust stúlkubarn

Söngvari hljómsveitarinnar Foo Fighters, Dave Grohl.
Söngvari hljómsveitarinnar Foo Fighters, Dave Grohl. mbl.is/AFP

Eiginkona Dave Grohl, Jordyn Blum, eignaðist þeirra þriðja barn saman hinn 1. ágúst síðastliðinn, að því er Daily Mail greinir frá.

Saman eiga þau hjónin fyrir tvær stelpur, þær Violet Maye sem er átta ára og Harper Willow sem er fimm ára.

Hinn 1. ágúst eignaðist Jordyn Blum stúlkubarn og hafa hjónin nefnt hana Opheliu.

Fréttatilkynning af fæðingu stúlkunnar kemur stuttu eftir þær fréttir að faðir söngvarans, James Grohl, lést eftir langvarandi sjúkdóm hinn 6. ágúst.

Þessa dagana vinnur söngvarinn að nýrri heimildarmynd í samvinnu við sjónvarpsstöðina HBO en hún kemur út í október á þessu ári.

Heimildarmyndin kallast Foo Fighters: Sonic Highways en Dave Grohl fékk harða dóma eftir síðustu heimildarmynd sína Sound City.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant