Erfiðleikar í hjónabandinu

Mariah Carey ásamt eiginmanni sínum Nick Cannon.
Mariah Carey ásamt eiginmanni sínum Nick Cannon. mbl.is/AFP

Eiginmaður Mariah Carey, Nick Cannon, hefur viðurkennt að þau hjónin hafi búið í sitthvoru lagi í nokkra mánuði, að því er The Insider With Yahoo greinir frá.

America's Got Talent-kynnirinn, Nick Cannon, hefur staðfest að hjónaband þeirra Mariah Carey hafi ekki verið upp á sitt besta undanfarið. Þau einbeita sér þessa dagana að því að hugsa um börnin sín en saman eiga þau tvíbura sem eru fjögurra ára, eða þau Moroccan og Monroe.

Vinir parsins telja að hjónabandið hafi orðið slæmt eftir að Nick Cannon viðurkenndi að hann hefði sofið hjá fimm frægum konum áður en hann giftist Mariah Carey, þar á meðal Kim Kardashian, í bandarískum útvarpsþætti í mars síðastliðnum.

Ásamt því sagði hann í viðtalinu að Mariah Carey hefði neitað að sofa hjá honum fyrr en eftir að þau giftu sig.

Nick Cannon og Mariah Carey giftust í apríl árið 2008 á einkaeign söngkonunnar á Bahamaeyjum.

Mariah Carey er einnig reið út í eiginmann sinni fyrir að hafa tekið að sér of mikla vinnu en hann segist hafa aflað fjölskyldunni um 75 milljóna bandaríkjadollara, eða nær 9 milljarða íslenskra króna, síðan árið 2011.

Parið setti glæsihýsi sitt í New York á sölu í júlí og hafa þau ekki verið mynduð saman svo mánuðum skiptir ásamt því að Mariah Carey hefur ekki minnst á manninn sinn síðan í júní.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler