Taylor Swift og fyrrverandi kærasti hennar, John Mayer, lentu í því óskemmtilega atviki að koma auga á hvort annað á sama veitingastaðnum en ákváðu að veita hvort öðru enga athygli þrátt fyrir að vita af hvort öðru.
Að því er vefsíða TMZ greinir frá snæddu þau kvöldverð, sitt í hvoru lagi, á veitingastaðnum Chateau Marmont í Hollywood á miðvikudaginn síðasta og forðuðust augnsamband allan tímann sem þau snæddu kvöldverðinn.
Heimildarmaður sagði í viðtali við TMZ að þau hefðu séð hvort annað en ekki veitt hvort öðru neina athygli.
John Mayer og Taylor Swift voru saman fyrir fjórum árum en þau hafa bæði skotið á hvort annað í lagastextum sínum og virðast enn bera mikla gremju til hvort annars.
John Mayer, sem er 36 ára, skammaðist sín meðal annars mjög mikið þegar Taylor Swift samdi lag sem hét Dear John en í textanum má finna vísanir í hann og samband þeirra.
Taylor Swift og John Mayer hættu saman árið 2010 en eftir sambandsslitin var John Mayer meðal annars með söngkonunni Katy Perry. John Mayer og Katy Perry hættu hins vegar saman fyrr á þessu ári.
Eftir sambandsslitin við John Mayer hefur Taylor Swift meðal annars verið með One Direction söngvaranum Harry Styles og Jake Gyllenhaal.