Það var létt yfir Snæbirni Ragnarssyni (Bibba) í hljómsveitinni Skálmöld þegar hann skálmaði af staði í Reykjavíkurmaraþoninu í morgun. Hann ætlar að hlaupa 10 kílómetra.
Félagarnir í Skálmöld hafa tekið þátt í að auglýsa Reykjavíkurmaraþonið. Þeir hafa stundað æfingar í sumar. Á facebook-síðu sveitarinnar þakka þeir fyrir stuðninginn og kveðjurnar.
„Við erum allir örlítið betri menn fyrir vikið, og sumir okkar talsvert léttari líka. Í upphafinu var svo sem ekki alveg fyrirséð í hvaða átt þetta færi og mögulega var stutt í fíflaganginn. En þegar upp var staðið tókum við þetta allir mjög föstum tökum, gerðum allt af fullum heilindum og gleði sem vonandi hefur smitað út frá sér. Og við erum, allir sem einn, ákveðnir í að halda mannræktinni áfram.“
Skálmöld hefur hlaupið til stuðnings barnaspítala Hringsins.
Fyrstu þrír karlar í hálfu maraþoni eru komnir í mark í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka:
Fyrstu þrír íslensku karlarnir voru: