Hættur með kærustunni

Ljósmynd/Wikipedia

Aðalleikarinn úr kvikmyndinni Fault in Our Stars, Ansel Elgort, er hættur með kærustu sinni, Violetta Komyshan, að því er vefsíða Us Magazine greinir frá.

Parið hafði verið saman síðan í menntaskóla en slitu sambandinu nýlega vegna þess hversu upptekinn Ansel Elgort er við að sinna kvikmyndaferli sínum.

Ansel Elgort og Violetta Komyshan gengu saman í New York's La Guardia High School og tilkynnti leikarinn ástarsambandið opinberlega á tískusýningu í París í júní síðastliðinn.

Leikarinn mætti einn í brúðkaup systur sinnar síðasta laugardag í Southampton í New York.

Ansel Elgort segist undrandi á þeirri miklu athygli sem hann fái frá ungum stúlkum og segir þær öskra nafn sitt og jafnvel gráta þegar hann beri að garði en þessar síauknu vinsældir telur hann vera kvikmyndinni Divergent að þakka en hann fór með hlutverk í myndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson