Ofurfyrirsætan Katie Price og eiginmaður hennar, Kieran Hayler, geta ekki ákveðið nafn á nýfætt stúlkubarn sitt og kalla hana þess vegna Runner Bean á meðan.
Að því er tímaritið Now Magazine greinir frá segir fyrirsætan að þau hjónin séu ekki sammála um hvað þau eigi að nefna barnið en þau hafi að minnsta kosti þrjú nöfn í huga.
Katie Price eignaðist barnið fyrir um þremur vikum en hún á fyrir 12 mánaða gamlan son, Jett, með Kieran Hayler og sjö ára gamla dóttur, Princess, og Junior sem er níu ára og Harvey sem er 12 ára úr fyrri samböndum sínum.
Nýjasta fjölskyldumeðlimnum segist Katie Price ekki geta gefið hefðbundið nafn vegna þess að systir hennar heiti Princess, eða Prinsessa.
Fyrirsætan segir þau hjónin hafa þrjár vikur í viðbót til að ákveða sig áður en þau þurfa að skrá fæðingu barnsins. Þangað til hyggjast þau kalla stúlkuna Little Bean.