Höfundar Sherlock Holmes sjónvarpsþáttanna sem sýndir eru á sjónvarpsstöðinni BBC, Steven Moffat og Mark Gatiss, hefur sagt leikurum þáttanna frá því sem á að gerast í næstu þáttaröð en söguþráðurinn fékk leikarana meðal annars til að tárast.
Steven Moffat og Mark Gatiss eru mennirnir á bakvið Sherlock Holmes þættina en þeir voru ekki vissir um hvort að þættirnir myndu halda áfram á Emmy verðlaunahátíðinni sem haldin var á mánudaginn síðasta.
Að því er vefsíða Den of the Geek greinir frá hafa hafa þeir hins vegar staðfest að fjórða þáttaröðin af þáttunum mun verða tekin upp á næsta ári. Markmið þeirra Steven Moffat og Mark Gatiss er að toppa þriðju þáttaröðina.