Japanska ríkisstjórnin hefur beðið íbúa landsins um að undirbúa sig undir það versta og hamstra salernispappír.
Iðnaðarráðuneytið hefur sett af stað herferð í tilefni af hamfaradeginum þann 1. september. Bendir ráðuneyti fólki á að koma sé upp neyðarbirgðum, svo sem mat og hreinlætisvörum, ef meiriháttar hamfarir ríða yfir landið.
Í Tókýó voru haldnar almannavarnaæfingar í dag þar sem viðbrögð við jarðskjálftum voru æfð.
Á veggspjaldi frá iðnaðarráðuneytinu er minnt á það að þegar náttúruhamfarir, eins og stórir jarðskjálftar, komi alltaf upp skortur á salernispappír.
Í mars 2011 reið yfir jarðskjálfti upp á 9 stig í Japan og meiriháttar flóðbylgja fylgdi í kjölfarið. Þá varð víða skortur á salernispappír enda hamstraði fólk allt á milli himins og jarðar. Meðal annars voru hillur verslana með salernispappír tæmdar.