Söngkonan Kate Bush er fyrst allra kvenna til að eiga átta plötur á breska vinsældalistanum á sama tíma.
Hin 56 ára Bush steig á svið í Hammersmith Apollo í Lundúnum í seinustu viku í fyrsta sinn eftir 35 ára hlé. Flutningur hennar sá til þess að plötur hennar skutust upp vinsældalistann.
Platan The Whole Story er númer sex á vinsældalistanum á meðan Hounds of Love er númer níu. Sex hljómplötur til viðbótar frá Bush eru á listanum.
Kate Bush á syni sínum velgengnina að þakka að eigin sögn en hann hefur veitt henni innblástur til að koma fram á ný. „Án sonar míns þá hefði ég örugglega misst kjarkinn.“