Móðgar fyrrverandi kærastann í lagatexta

Madonna lætur fólk gjarnan fá það óþvegið með lagatextum sínum.
Madonna lætur fólk gjarnan fá það óþvegið með lagatextum sínum. AFP

Söngkonan Madonna fer ekki fögrum orðum um fyrrverandi kærasta sinn, Brahim Zaibat, í nýjum lagatexta sem var nýverið lekið á netið.

Madonna virðist vera óhrædd við að láta fólk heyra það með textum sínum en hún hefur nú þegar látið Lady Gaga og fyrrverandi eiginmann sinn, Guy Richie, fá það óþvegið. 

Samkvæmt The Sun dagblaðinu fjallar nýjasti texti Madonnu um Zaibat á niðurlægjandi hátt. Þá gerir hún grín að honum fyrir að vera ekki efnaður og minnist á að hún sé að opna vínflöskur sem hann hafi seint efni á. 

Madonna og Zaibat hættu saman árið 2013 eftir að hafa verið að stinga saman nefjum í um þrjú ár.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler