Leikkonan Mindy Kaling er miður sín yfir að hafa ekki fengið hlutverk í gamanmyndinni Bridesmaids en hún hafði áhuga á að fara með hlutverk Lillian.
Kaling hafði undurbúið sig vel fyrir hlutverkið að eigin sögn. „Þau hringdu í mig vegna hlutverks Lillian í myndinni, ég hafði æft mig svo mikið og ég var alveg komin í hlutverkið,“ sagði Kaling í spjallþættinum Watch What Happens Live.
Það var leikkonan Maya Rudolph sem hlaut að lokum hlutverk Lillian og kvaðst Kaling hafa verið niðurbrotin að hafa ekki fengið hlutverkið. Maya Rudolph og Kristen Wiig, handritshöfundur og aðalleikkona Bridesmaids, eru góðar vinkonur.