Kvartaði undan eymslum í hálsi

Joan Rivers hafði fundið til í hálsinum rétt áður en …
Joan Rivers hafði fundið til í hálsinum rétt áður en hún lést. AFP

Rétt áður en hin 81 árs Joan Rivers lést hafði hún kvartað undan eymslum í hálsi og átti erfitt með tal. 

„Ég sagði ykkur það, mér líður ekki vel, röddin er eitthvað að trufla mig. Ég veit ekki hvað þetta er...mér líður hörmulega. Ég er strax orðin þreytt,“ má heyra Rivers segja á upptöku fyrir auglýsingu sem tekin var upp rétt áður en Rivers var flutt á spítala. Þessu er greint frá í New York Post dagblaðinu.

Upptakan endar á því að Rivers kveðst ekki geta haldið áfram. „Ég verð að fá að gera þetta seinna.“

Rivers var 81 árs þegar hún lést eftir að hafa farið í hjarta- og öndunarstopp þegar hún gekkst undir aðgerð á hálsi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson