Kærir fyrrverandi kærastann

Seinustu dagar hafa verið erfiðir fyrir Iggy Azalea.
Seinustu dagar hafa verið erfiðir fyrir Iggy Azalea. AFP

Seinasta vika hefur verið frekar slæm fyrir rapparann Iggy Azalea þar sem Steve Hirsch, eigandi klámmyndafyrirtækisins Vivid Entertainment, kvaðst ætla að gefa út kynlífsmyndband á næstu dögum sem sýnir Azalea. Þá komst hún einnig upp á kant við fyrrverandi kærastann sinn í vikunni sem reyndir nú að græða á óútgefinni tónlist hennar.

Maurice Williams, fyrrverandi kærasti Azalea, tilkynnti nýverið að hann ætlaði að gefa út smáskífu með tónlist sem Azalea gerði þegar hún var yngri. Þessu er greint frá á The Hollywood Reporter. Azalea hefur nú kært Williams fyrir að hafa tekið afrit af tölvugögnum hennar í leyfisleysi og fyrir að falsa undirskrift hennar.

Azalea og Williams kynntust árið 2008. Þau voru par þar til Azalea komst að því að Williams var giftur og átti börn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson