Skar sig til að sanna ást sína

Sharon Osbourne.
Sharon Osbourne. mbl.is/ Cover Media

Sjónvarpsstjarnan Sharon Osbourne greindi frá því í spjallþættinum The Talk að hún hafi skorið sig innan á úlnliðina þegar hún var 27 ára en þannig ætlaði hún að sanna fyrir Ozzy Osbourne hversu heitt hún elskaði hann.

Sharon Osbourne var flutt á spítala og er enn með ör að eigin sögn.

„Ég hef aldrei talað um þetta áður vegna þess að ég skammast mín fyrir að hafa gert svona heimskulegan hlut. Ég var 27 ára. Þetta gerðist klukkan fjögur um nóttina, við höfðum drukkið mikið. Hann spurði mig hversu heitt ég elskaði hann og ég sagðist gera hvað sem er fyrir hann. Svo sótti ég hníf í eldhúsið og skar mig á úlnliðina.“

Sharon var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar og hlaut aðstoð þar sem læknar töldu hana hafa ætlað að fremja sjálfsmorð.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson