Sharon Stone er sögð heimtufrek

Sharon Stone er sögð erfið viðureignar.
Sharon Stone er sögð erfið viðureignar. AFP

Leikkonan Sharon Stone er sögð gera miklar kröfur á tökustað nýjustu myndar hennar, The Golden Boy, en framleiðendur og leikstjórar myndarinnar eru að gefast upp á heimtufrekjunni í henni.

Ítalski leikstjórinn Pupi Avati segir Stone gera „fáránlegar“ kröfur en hann telur dvínandi frægð hennar valda þessari frekju og hroka.

„Eftir að ég var búin að ráða hana í hlutverkið þá hófust samningaviðræður á milli umboðsmanna hennar og lögfræðinga okkar. Þetta var algjörlega fáránlegt og vandræðalegt.“

Avati segir Stone hafa mætt illa í vinnuna og að hún hafi horfið af tökustað í tíma og ótíma en talsmaður Stone segir þetta vera ósatt. „Hún er fagmaður fram í fingurgóma.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant