Söngkonan skrautlega Paloma Faith laug til um aldur sinn til að landa plötusamninga að eigin sögn.
Faith sagði yfirmönnum sínum að hún væri 23 ára þegar hún var í raun og veru 27 ára vegna þess að hún taldi sig vera of gamla til að fá plötusamning.
„Þegar ég var spurð hversu gömul ég væri á fyrsta fundi okkar þá hreytti ég út úr mér að ég væri 23 ára, ég var í raun 27 ára,“ sagði Faith í viðtali fyrir Daily Mirror. Hún kveðst ekki sjá eftir lyginni.
„Ég ætlaði mér ekki að gera þetta, þetta var ekki fyrirfram planað,“ útskýrði Faith sem trúir því fastlega að hún hefði ekki fengið samning ef hún hefði sagt sannleikann á þessum fyrsta fundi.
Paloma Faith er 33 ára í dag og á farsælan feril að baki.