Naut ekki kynlífs fyrir 25 ára aldur

Lena Dunham.
Lena Dunham. AFP

Leikkonan Lena Dunham, sem er þekkt fyrir að vera opinská og ófeimin, tjáði sig nýverið um að hún haf ekki notið þess að stunda kynlíf fyrr en hún var orðin 25 ára gömul.

Dunham er 28 ára í dag og í sambandi með tónlistarmanninum Jack Antonoff. Dunham kveðst hafa verið áhyggjufull áður fyrr hvað varðaði kynlíf. Hún var of upptekin af því að þóknast hinum aðilanum að eigin sögn. Hún segist þó kunna að njóta kynlífs í dag.

„Ég held að ég hafi ekki einu sinni leitt hugann að þessu áður fyrr. Ég hafði alltaf áhyggjur af því hvort hinn aðilinn væri að njóta þess að sofa hjá mér. Það hvarflaði ekki að mér að ég gæti fengið eitthvað út úr þessu,“ sagði Dunham í myndbandi sem birt var á NotThatKindOfGirl YouTube-rásinni

„Þú verður að elska sjálfa þig svo einhver annar geti elskað þig,“ sagði Dunham sem hefur verið með kærasta sínum síðan árið 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson