Vilja alla athyglina sjálf

Kate Winslet.
Kate Winslet. AFP

Kate Winslet og Leonardo DiCaprio hafa verið góðir vinir í áraraðir en þau léku saman í kvikmyndinni Titanic sem kom út árið 1997. Þau verða bæði 40 ára á næstu mánuðum en treysta sér ekki til að halda sameiginlega afmælisveislu.

„Hann verður fertugur á þessu ári og ég verð fertug á því næsta, það er skrýtið. Er það ekki skrýtið?“ sagði Winslet í viðtali sem birtist í nýjasta tölublaði Marie Clair. „Hann vildi ekki halda sameiginlega veislu með mér, alls ekki. En ég held reyndar að ég vilji ekki halda sameiginlega veislu með honum,“ útskýrði Winslet og viðurkenndi að þau vilja hvorug deila athyglinni með öðrum.

Winslet segir þau þó vera bestu vini. „Ég held að þessi vinátta gangi svona vel upp vegna þess að það hefur aldrei verið neitt rómantískt á milli okkar.“

DiCaprio og Winslet hafa verið einstaklega náin í gegnum tíðina. DiCaprio fylgdi Winslet meira að segja að altarinu þegar hún gekk að eiga eiginmann sinn, Ned Rocknroll, árið 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler