Tónlistarkonan Kelly Rowland, sem eitt sinn söng með hljómsveitinni Destiny's Child, hefur nú bæst í hóp þeirra óléttu kvenna sem setið hafa naktar fyrir á forsíðu tímarits.
Rowland prýðir blaðsíður nýjasta tölublaðs Elle en hún er nakin eða fáklædd á myndunum, Rowland er komin um átta mánuði á leið.
Demi Moore, Britney Spears og Jessica Simpson eru meðal þeirra kvenna sem hafa afhjúpað allt fyrir vinsæl tímarit á meðan þær voru óléttar.
„Ég get ekki beðið eftir að hún komi í heiminn. Ég á bara nokkrar vikur eftir. Ég hlakka til að koma barni í heiminn, það besta við þetta er að ég mun deila lífsreynslunni með eiginmanni mínum,“ sagði Rowland í viðtali við blaðamann Elle.
Rowland og eiginmaður hennar, Tim Witherspoon, giftu sig fyrr á þessu ári. Þetta er þeirra fyrsta barn saman.