Eiga von á sínu fyrsta barni saman

Stanley Tucci á von á barni með eiginkonu sinni, Felicity …
Stanley Tucci á von á barni með eiginkonu sinni, Felicity Blunt. AFP

Leikarinn Stanley Tucci á von á barni með eiginkonu sinni Felicity Blunt. Þetta er þeirra fyrsta barn saman en Tucci á þrjú börn fyrir með fyrrverandi eiginkonu sinni, Kathryn Spath-Tucci, sem lést árið 2009 úr brjóstakrabbameini.

„Ég er mjög spenntur að verða faðir, það er ótrúlegt. Ég hlakka til að eignast barn með Felicity og vona að barnið verði heilbrigt,“ sagði hinn 53 ára Tucci í viðtali sem birtist í Us Weekly í gær. 

Tucci kynntist Felicity Blunt í gegnum systur hennar, leikkonuna Emily Blunt, en þau Tucci léku saman í kvikmyndinni The Devil Wears Prada.

Þetta er fyrsta barn Felicity Blunt.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant