Var í rauninni aldrei heimilislaus

Ed Sheeran hefur upplifað eitt og annað.
Ed Sheeran hefur upplifað eitt og annað. AFP

Aðdáendum söngvarans Eds Sheerans var brugðið á sínum tíma þegar þeir fréttu að Sheeran hefði verið heimilislaus áður en hann varð frægur. En nú hefur söngvarinn sjálfur stigið fram og sagt þetta misskilning.

Misskilningurinn hófst þegar MTV News greindu frá því að Sheeran hefði ekki átt í nein hús að venda og neyðst til að sofa utandyra frá árinu 2008 til ársins 2010. Sheeran hefur nú leiðrétt þennan misskilning en hann heldur því fram að hann hafi einfaldlega ekki átt rúm.

„Þetta var tekið úr samhengi í fjölmiðlum. Ég hef aldrei sagt þetta,“ sagði Sheeran í viðtali við Capital FM. „Ég átti ekki rúm í einhvern tíma, það er allt og sumt. Og ég svaf bara nokkrum sinnum fyrir utan Buckingham-höllina.“

Sheeran kveðst hafa stólað á vini sína áður en hann varð frægur. „Ég fór að gista á sófanum hjá vinum mínum og það var mjög gaman, við skemmtum okkur vel,“ útskýrði hinn 23 ára Sheeran.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson