Like a Virgin syngur nunnan

Cristina Scuccia rokkar sviðið í The Voice of Italy.
Cristina Scuccia rokkar sviðið í The Voice of Italy. Ljósmynd/Rai 2

Nunnan syngjandi, sem fór með sigur af hólmi í keppninni The Voice á Ítalíu fyrr á árinu, hefur gefið út smáskífu. Þar syngur hún smellinn sem Madonna gerði frægan á sínum tíma „Like a Virgen“ hástöfum.

Að sögn Cristina Scuccia valdi hún sjálf lagið og hún ætli sér alls ekki að ögra neinum né ganga fram af fólki. En hún segist vera reiðubúin að svara gagnrýni komi hún fram.

Samkvæmt frétt BBC er útgáfa Scuccia, sem er 26 ára gömul og frá Sikiley, allt öðru vísi en útgáfan sem Madonna flutti á sínum tíma. Nú er lagið orðið að ljúfri ballöðu og myndskeiðið á að vera mun hæglátara. Scuccia telur að Madonna hafi ekki heyrt hennar útgáfu en hún væri meira en til í að sjá framan í Madonnu þegar hún hlustar á lagið og er sagt að það sé nunna sem syngi það.

Því miður er útgáfa nunnunnar ekki komin á YouTube en þangað til geta lesendur yljað sér við þetta

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant