Við greindum frá því í morgun að bandaríski tískuhönnuðurinn Oscar de la Renta er látinn, 82 ára að aldri. Söngkonan Taylor Swift var meðal þeirra fyrstu sem minntust hönnuðarins á samfélagsmiðlum. Hún birti mynd á Instagram af sér í kjól frá De la Renta.
Myndinni fylgdu hjartnæm skilaboð. „Uppáhaldshönnuðurinn minn er látinn. Oscar, það var mér heiður að fá að klæðast hönnun þinni og að fá að kynnast þér,“ skrifaði Swift meðal annars.
Swift klæddist kjól De la Renta á Costume Institute Gala-sýningunni sem haldin var á safninu Metropolitan Museum of Artí maí. „Að fá tækifæri til að klæðast einstökum kjól frá honum [Oscar de la Renta] er draumur sem hefur ræst,“ sagði Swift á rauða dreglinum.