Eyddi einni og hálfri milljón í Manchester

Lady Gaga er ekki beint blönk.
Lady Gaga er ekki beint blönk. AFP

Söngkonan Lady Gaga missti sig gjörsamlega í verslunarferð í Englandi nýverið en hún eyddi einni og hálfri milljón króna á einu bretti.

Gaga var stödd í Manchester fyrr í vikunni og lét sér ekki leiðast. Hún fór í ma.a antikbúðir og eyddi fúlgufjár. Gaga klæddist gylltum kjól í verslunarferðinni en skipti svo yfir í blúndukjól eins og sannri stjörnu sæmir.

„Ekki pakka honum inn, ég ætla að klæðast honum,“ sagði Gaga við afgreiðslufólk verslunarinnar sem seldi henni blúndukjólinn.

„Lady Gaga var alveg yndisleg, mjög kurteis og viðmótsgóð,“ sagði ein afgreiðslukona sem aðstoðaði Gaga við að velja sér föt. „Hún eyddi dágóðum tíma í versluninni og var góður viðskiptavinur.“

Gaga endaði verslunarferðina með því að stoppa í ísbúð og gæða sér á ljúffengum desert.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson