Söngkonan Jordin Sparks er greinilega kjörkuð því hún fékk sér nýtt og áberandi líkamsgat í seinustu viku. Þetta hefur eflaust verið sársaukafullt því hún lét gata á sér miðnesið.
Sparks fór á húðflúrstofuna T-Man Tattoo og lét vaða í neflokk en heimildamaður TMZ.com segir Sparks hafa hugsað sig vel og lengi um áður en hún lét til skara skríða.
Sparks hætti með kærasta sínum nýverið og kannski er hún að fagna frelsinu með þessari breytingu.