Neitar að hafa farið í fegrunaraðgerð

Skjáskot af Instagram-síðu Kylie Jenner.
Skjáskot af Instagram-síðu Kylie Jenner. Instagram

Hin 17 ára Kylie Jenner hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir sjálfsmyndir sínar sem hún birtir reglulega á Instagram. Jenner þykir hafa tekið miklum útlitsbreytingum undanfarið og vilja sumir meina að hún hafi fengið sér fyllingarefni í varirnar, aðrir segja það ekki vera líklegt þar sem hún er aðeins 17 ára gömul.

Nýjustu myndir Kylie hafa þó vakið sérstaklega mikið umtal þar sem varir hennar eru óneitanlega mun stærri en þær voru áður fyrr.

Kylie hefur þvertekið fyrir að hafa farið í fegrunaraðgerð en hún segir varablýant vera galdurinn á bakvið stóru varirnar. „Þessar sögusagnir um lýtaaðgerðir eru særandi og hreint út sagt móðgandi,“ skrifaði Kylie á Twitter nýverið.

Dæmi hver fyrir sig.

Kylie Jenner (t.h.) árið 2012.
Kylie Jenner (t.h.) árið 2012. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson