Vilja að Blue Ivy læri frönsku

Beyoncé Knowles og Jay Z með dóttur sína Blue Ivy.
Beyoncé Knowles og Jay Z með dóttur sína Blue Ivy. mbl.is/AFP

Beyoncé Knowles og Jay Z eru sögð vera að leita sér að húsi í París en þau eru afar hrifin af borginni. Þau íhuga að flytja þangað í framtíðinni en vilja að dóttir þeirra, Blue Ivy, læri frönsku áður en þau láta til skarar skríða.

„Þau tala um að þau vilji að Blue Ivy læri frönsku. Þau ætla að kaupa sér hús í París og ætla svo að flytja þangað um síðir,“ sagði heimildamaður Us Weekly.

Fregnir hermdu þó á tímabili að hjónin væru að skilja en heimildamaðurinn segir þau vera komin yfir þá erfiðleika sem þau gengu í gegnum.

Beyoncé og Jay Z héldu svo tónleika í París nýverið og var Jay Z óhræddur við að láta áhorfendur vita hvað honum finnst um borgina. „Við elskum París. Borgin er okkur kær vegna þess að hérna trúlofuðum við okkur og hérna var Blue Ivy getin.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson