Afþakkaði brúðkaupsgjafir og lét gott af sér leiða

Leikkonan Casey Wilson.
Leikkonan Casey Wilson. AFP

Leikkonan Casey Wilson, sem leikur í Gone Girl, féllst á það að afþakka allar brúðkaupsgjafir og biðja gesti frekar um að leggja góðgerðarsamtökum lið. Það var eiginmaður Wilson, David Caspe, sem fékk þessa hugdettu.

Caspe vildi nýta tækifærið og láta gott af sér leiða á brúðkaupsdaginn en Wilson viðurkennir að hafa verið óviss á tímabili. „Hann er góð manneskja og vildi ekki búa til gjafalista vegna þess að hann vildi styrkja góðgerðarsamtök. Ég spurði hann nokkrum sinnum: „ertu alveg viss? Við höfum gefið svo mikið til góðgerðarmála.“ En hann sagði: „nei, fólk er ennþá svangt,“ og minnti mig á að við verðum að halda áfram að styrkja góð málefni,“ sagði Wilson í spjallþætti Ellen DeGeneres.

Casey Wilson og David Caspe gengu í það heilaga í maí á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson