Fólk á öllum aldri mætti á tónleika með Skálmöld sem fram fóru á Gauk á stöng í dag. Sumir tónleikagesta eru enn á leikskólaaldri, en þeir skemmtu sér vel á tónleikunum.
Ný hljómplata Skálmaldar er að koma út en hún hefur hlotið nafnið MEÐ VÆTTUM. Í kjölfarið heldur sveitin utan á túr um Evrópu og snýr til baka í lok árs. Þetta voru því síðustu tónleikar ársins. Í tilkynningu um tónleikana sagði að strákarnir ætluðu að prufukeyra mikið af nýja efninu á Gauknum. Pönksveitin Saktmóðigur var Skálmaldarmönnum til halds og trausts og hitaði upp mannskapinn.
Aðrir tónleikar verða á Gauknum í kvöld og hefjast kl. 22.