Selja einhleypum konum brúðkaup

AFP

Japanskt fyrirtæki býður konum í landinu nú upp á brúðkaupsathöfn án þess að þær þurfi brúðguma. 

Fyrirtækið, sem heitir Cera Travel, býður einhleypum konum upp á pakkann „Solo Wedding,“ en í honum felst allur sá undirbúningur og þau hátíðarhöld sem felast í brúðkaupi, án þess að nokkur skuldbinding eigi sér stað.

Athöfnin spannar tvo daga, og á þeim tíma fá konur að máta kjól, velja blómaskreytingar, fara í handsnyrtingu og í hárgreiðslu. Jafnframt geta konurnar valið sér karlkyns fyrirsætu sem fer með þeim í brúðkaupsmyndatöku. Þá gista þær á flottu hótelherbergi eins og þær væru í brúðkaupsferð.

Pakkinn kostar um 2.750 dollara eða rúmlega 330 þúsund krónur, og nú þegar hafa 10 konur keypt hann.

Þjónustan var kynnt til leiks í júní og er miðuð að einhleypum vinnandi konum sem hafa ákveðið að stunda feril sinn í stað þess að gifta sig. Einnig er hún miðuð að konum sem hafa skilið en vilja upplifa þessa sérstöku stund aftur.

„Þetta er einstök reynsla og við erum mjög stolt af þessu,“ sagði talsmaður fyrirtækisins í samtali við Daily Mail.

Nagi Daisen, 43 ára kaupsýslukona, er ein þeirra sem hefur nýtt sér þjónustuna og var hún alsæl með upplifunina. „Ég hef verið í sambandi í mörg ár en við höfum aldrei komist í það að gifta okkur. Svo ég ákvað að gera þetta fyrir sjálfa mig og þetta var ótrúlega gaman,“ sagði hún. „Mig hefur alltaf dreymt um að fara í brúðarkjól og vera ofdekruð og nú hef ég gert það. Það var frábært.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson