Dreymir þig um að sofa í herbergi Biebers?

Æskuheimili Justin Bieber er til sölu.
Æskuheimili Justin Bieber er til sölu. tmz.com

Amma og afi Justin Bieber ætla nú aldeilis að reyna að græða á barnabarninu en þau hafa sett hús sitt á sölu og auglýsa það sem „uppeldisheimili“ Beiber.

Þeir sem þrá að sofa í sama herbergi og Justin Bieber gerði á unglingsárunum geta nú keypt hús ömmu hans og afa. Húsið kostar tæpar 35 milljónir króna. Þessu er greint frá á heimasíðu TMZ.

Húsið er þriggja herbergja og er í Stratford, Ontario. Í þessu húsi eyddi barnastjarnan Bieber stórum hluta æsku sinnar enda sáu amma og afi hans að mestu um uppeldið. Fasteignasalinn sem starfar fyrir ömmu og afa Biebers segir húsið vera nýuppgert en að herbergi Biebers sé alveg eins og hann skildi við það. Á veggjum herbergisins er þá t.d. málning og veggborði sem Bieber valdi.

Það yrði eflaust slegist um húsið ef 12 ára stelpur væru áberandi á fasteignamarkaðinum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson