Heldur rándýra veislu fyrir heimilislausa

Miley Cyrus og heimilislausi vinur hennar, Jesse Halt, á MTV …
Miley Cyrus og heimilislausi vinur hennar, Jesse Halt, á MTV verðlaunahátíðinni. AFP

Söngkonan Miley Cyrus er nú að undirbúa veglegt jólaboð sem hún hyggst halda fyrir heimilislaust fólk. Cyrus mun eyða rúmri milljón króna í boðið.

Hin 21 árs Cyrus hefur áður reynt að vekja athygli á stöðu heimilislausra í Bandaríkjunum en hún á góðan vin sem er heimilislaus. Núna ætlar hún að leggja sitt af mörkum og gleðja hóp heimilislausra í aðdraganda jólanna. Hún hefur ráðið kokk sem mun elda þriggja rétta máltíð fyrir jólaboðið og auðvitað munu reyndir þjónar þjóna til borðs.

„Sumt fólk segir hana bara vilja vekja athygli á sjálfri sér en í rauninni er hún virkilega hugulsöm og vill hafa áhrif á líf þessa heimilislausa fólks. Hún er að leggja sig alla fram,“ sagði heimildamaður Daily Star.

Cyrus er þá einnig sögð ætla að skemmta gestum sínum eftir matinn en ekki er vitað hvort hún tekur lagið fyrir þá.

Lög­regl­an leit­ar að fé­laga Cyr­us

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant